7

Steinar Sigurgeirsson

Eigandi og framkvæmdastjóri

Steinar er menntaður búfræðingur, málm- og stálsmiður, vélstjóri og skipstjóri.
Hann hefur áratuga reynslu í hvers kyns suðuvinnu, járnsmíði og jarðvinnu.

Hvað Sæblær ehf gerir:

Sæblær ehf. er vélsmiðja og verktakafyrirtæki.

Jarðvinna: grunnar fyrir íbúðarhús, sumarhús og fleiri tegundir bygginga, fyllum í og þjöppum grunna, vegagerð fyrir sumarbústaði o.fl.  jarðvegsflutningar, rotþrær, fleygun á klöpp.

Áralöng reynsla í smíði á hverskonar kerrum, vegristum, veghliðum, gönguhliðum, stigum og handriðum, bæði úti og inni,  ásamt fjölmörgu öðru.

Nýsmíði úr stáli og ryðfríu efni og hvers konar suðuvinna.

Viðgerðir, viðhald og sérsmíði í bátum og skipum þar sem lögð er áhersla á skipulag og gott vinnuumhverfi sjómanna.

Sæblær ehf. hefur sérhæft sig í flutningum á iðnaðarvélum og tækjum fyrir fyrirtæki og þá er oft innifalið að taka niður vélbúnað og setja upp.

Skoðaðu myndasafnið okkar
Finndu okkur á facebook

Starfsfólk